Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Almennar fréttir
Matjurtagarðurinn okkar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 24 ágúst 2010 14:42

 

Þessi fallegu Sólber týndum við í garðinum okkar í dag. Þar eru líka kartöflur,salat,gulrætur og steinselja sem bíða eftir að komast í litla munna.

Börnin á Lindinni aðstoðuðu við að týna berin af runnanum

Sjá fleiri myndir hér fyrir neðan undir meira.

 

 

Lesa meira...
 
Aðlögun í fullum gangi Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 18 ágúst 2010 14:30


 Aðlögun er í fullum gangi í skólanum.
 Á lautinni byrjuðu 4 börn á mánudaginn og í dag 18.ágúst
 byrjuðu 20 börn á Stjörnunni.
 Mánudaginn 23 ágúst byrja 15 börn á Lindinni og 1 barn á Sólinni.
 Við erum með þátttökuaðlögun þar sem við tökum inn mörg börn í einu og foreldrar eru með    börnunum í 3 daga frá 9-15. 
Með því að ýta á  Þátttökuaðlögun getið þið fræðst meira um það

 

 

 

Lesa meira...
 
Geislabaugur 6 ára Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 13 ágúst 2010 14:55

 

 

Hann á afmæli í dag
hann á afmæli í dag
hann á afmæli Geislabaugur
hann á afmæli í dag
Húrra-húrra-húrra-húrra !!!

Í dag 13 ágúst er Geislabaugur 6 ára
tilefni þess voru settar upp ýmsar leikstöðvar sem áttu upphaflega að vera úti en vegna úrhellis rigningar færðum við allt innandyra.
Það var svaka gaman börnin röltu á milli deilda og tóku þátt
í hinum ýmsu stöðvum s.s. Limbó -Kúluleik með golfkúlum-Fallhlífarleik-Húllahringir-teygjutvist og margt fleira.
Rúsínan í pylsuendanaum var að sjálfsögðu afmæiskaka með nammi ofaná.
Góða helgi !!

 
Áríðandi tilkynning Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 10 ágúst 2010 14:49

Áríðandi er að einstæðir foreldrar og námsmenn sæki um niðurgreiðslu leikskólagjalda
fyrir 15 ágúst ef þeir eru ekki þegar búnir að því

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 35

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Geislabaugur | Kristnibraut 26 | 113 Reykjavík | s: 5172560 | Póstur | Viðburðir | Fréttir