| júní |
|
|
|
| þriðjudagur, 29 júní 2010 09:29 | |
|
hæ hæ við lindarbörn höfum nú aldeilis átt góða daga i júní. Fyrst ber að nefna hjóladaginn okkar. þá komu flestir með hjól og við fengum að vera ein í garðinum okkar og hjóla fyrir hádegi. Við tókum okkur líka til ásamt öllum börnum leikskólans og gróðursettum fullt fullt af kartöflum sem við ætlum svo að taka upp seinna í sumar og borða sjálf... namm namm sumarhátíðin var svo haldin með pompi og prakt, við fórum í skrúðgöngu með Reynisholti og sungum fyrir eldriborgara, síðan komum við hingað heim og grilluðum pylsur. einnig var boðið upp á hina ýmsu leiki í boði starfsmannanna. mikil gleði og voða gaman þennan dag :) í síðustu viku kom svo brúðubíllinn upp í Ingunnarskóla og auðvitað létum við það ekki framhjá okkur fara. við rölltum saman í einni halarófu til að sjá afmælissýningu brúðubíllsins hennar Helgu Stef. Flestum var mjög skemmt yfir honum Á föstudaginn lögðum við svo upp í næstum dagsferðalag til hennar Boggu, fyrrverandi deildarstjóra. þegar þangað var komið fundu allir e-ð að leika við sitt hæfi, ýmist úti í þessum fínu garðleikföngum eða í herbergjum barna hennar. því næst var grillað og svo bauð Bogga okkur upp á íspinna :) yngri börnin fóru í hvíld en þau eldri slökuðu á yfir toy story 2 þetta var yndislegur dagur í alla staði og þökkum við Boggu fyrir að taka á móti okkur öllum. nú styttist í sumarfrí okkar og fram að því ætlum við að eiga góðar stundir saman.
kv Lindarbörn
|