Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Hér að neðan má sjá ýmsar hagnýtar upplýsingar.

Áfallaáætlun Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Áfallaáætlun

 í leikskólunum

Geislabaugi, Maríuborg og Reynisholti

 

Í Grafarholti eru starfandi þrír leikskólar og innan þeirra hefur verið unnin ein sameiginleg áfallaáætlun. Í hverjum leikskóla er áfallateymi en í því sitja leikskólastjóri/staðgengill hans og deildarstjórar. Ef áfall verður sem snertir fleiri en einn skóla í hverfinu er kallað saman áfallaráð. Í áfallaráði sitja fulltrúar frá Ingunnarskóla og Sæmundarseli, leikskólastjóri og staðgengill leikskólastjóra í viðkomandi leikskóla, skólahjúkrunarfræðingur, skóla-sálfræðingur og sóknarprestur.


Hér má sjá hluta áfallaáætlunar leikskólanna



 

Áfallaráð/áfallateymi er bundið trúnaði

 



Með áföllum er átt við

  • dauðsföll
  • langvarandi og alvarleg veikindi
  • slys og afleiðingar þeirra
  • ýmsar félagslegar aðstæður sem leiða til aukins álags á heimili barns (s.s. skilnaðir, flutningar, vímuefni, atvinnuleysi og misnotkun).

Þegar áfall verður í leikskólanum sem tengist starfsmanni eða leikskólabarni með beinum hætti er mikilvægt að öll skilaboð berist strax til leikskólastjóra eða staðgengils hans. Leikskólastjóri kallar saman áfallateymi ef þurfa þykir sem skipuleggur með hvaða hætti skuli brugðist við, stjórnar aðgerðum og metur hvort kalla þarf til áfallaráð.


Komi einhver sá atburður fyrir að fjölmiðlar sækist eftir upplýsingum er það eingöngu leikskólastjóri eða staðgengill hans sem gefur þær. Leikskólastjóri leitar samráðs við leikskólaskrifstofu Menntasvið Reykjavíkurborgar ef ástæða þykir til.


Hlutverk áfallateymis er að vera leikskólastjórum og öðru starfsfólki leikskólanna til aðstoðar við að halda utan um þær aðgerðir sem fara í gang þegar áfall verður.


Það skal gert með því

  • að leita til prests eða annarra sérfræðinga og stuðningsaðila sem þurfa að koma inn í leikskólann til aðstoðar
  • að meta á hvaða hátt skuli brugðist við
  • að safna upplýsingum um það sem komið hefur fyrir
  • að taka til ítarefni
  • að gera áætlun um það ferli sem fer í gang, miðla upplýsingum, útdeila verkefnum og  halda utan um þá vinnu

Mikilvægt er að öll viðbrögð og áætlanir séu settar fram af yfirvegun og nærgætni.  Ákveðið er af áfallateymi hver hefur hvaða hlutverk, hver kemur skilaboðum áfram og með hvaða hætti til barnanna og foreldranna og einnig hver tekur við skilaboðum og gefur upplýsingar út á við. 


Þegar áfall eða sorg ber að dyrum þá er mikilvægt að viðkomandi hafi í huga að það sem skiptir mestu máli er:


Hlýtt hjarta, faðmlag, stór eyru og lítill munnur




Vera minnug þess að sýna atburðinum virðingu án þess að dvelja of lengi við áfallið



Áfallahjálp fyrir börn

  • Nota opin, hreinskilin og einlæg tjáskipti.
  • Barninu er greint frá staðreyndum um það sem gerst hefur og hvernig, einnig hvað muni trúlega gerast.
  • Sá fullorðni talar við barnið í samræmi við aldur og þroska þess. Útskýri ekki fræðilega fyrir barninu heldur noti einfaldar og skýrar útskýringar.
  • Forðast huglægar útskýringar og nota ekki orð eins og svefn, ferð o.s.frv. í staðinn fyrir dauðann.
  • Forðast að nota líkingamál, tala undir rós og nota orðatiltæki. Betra að nota opin og einlæg tjáskipti (Guðrún Alda Harðardóttir, 2001:92-93).



Leita skal leiða til að hjálpa börnunum að vinna úr tilfinningum sínum t.d. í gegnum leik og/eða sköpun




.


Heimildaskrá:

Áfallaáætlun. (2005). Leikskólinn Bakki, Reykjavík.

Áfallaráð. (2004). Leikskólinn Hlíðarendi, Hafnarfirði

Áfallaráð. (2005). Ingunnarskóla og Sæmundarsels.

Guðrún Alda Harðardóttir. (2001). Í leikskóla lífsins.




Bækur um sorg og sorgarviðbrögð:


Börn og sorg                          Sr. Sigurður Pálsson (1998).


Börn og skilnaður                 Benedikt Jóhannsson (2004).


Von                                         Sr. Bragi Skúlason


Sorg barna                              Sr. Bragi Skúlason (1994)


Af hverju afi?                          Sigurbjörn Einarsson (2004).


Til þín sem átt um

sárt að binda                           Karl Sigurbjörnsson (1995).


Það má ekki vera satt                        Guðrún Alda Harðardóttir

                                      Halla Sólveig (1997).


Að kveðja í síðasta sinn        Lois Rock ( íslensk þýðing:

Kaffistofan Sippóra) (2005).


Sumarlandið                          Eyvind Skeie (íslensk þýðing:

                                               Sigurður Pálsson) (1995).


Elli og Skilnaðurinn               Kirsti R. Haaland og Inger Landsem

                                               (íslensk þýðing: Hreinn S. Hákonarson)(2004).

 
Laus störf í boði Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Við á Geislabaugi erum alltaf að leita að góðu starfsfólki.
Vinsamlegast sendið atvinnuumsóknir á Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.
 
Uppsagnafrestur /breytingar á leikskólaplássi Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Leikskólaplássi þarf að segja upp með eins mánaðar fyrirvara miðað við 1. eða 16.

hvers mánaðar. Tilkynna skal leikskólastjóra uppsögnina skriflega. Eyðublöð er hægt að nálgast hjá leikskólastjóra. Greiða skal gjald fyrir plássið út uppsagnarfrestinn, þó að barnið hafi hætt fyrr.
Þegar foreldrar óska eftir breytingu á dvalartíma barns í leikskólanum hafa þeir
samband við leikskólastjóra og kynna sér möguleikana sem eru fyrir hendi.
Reynt er að koma til móts við óskir foreldra um breytingar en ekki er víst að alltaf sé hægt að verða við þeim.

 
Leikskólataskan Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Hér notum við plastkassa fyrir hvert barn sem þau nota fyrir aukafatnað.
Leikskólatöskur eru óþarfar.
Í kassanum á að vera buxur-peysa-bolur-nærföt-sokkar-sokkabuxur-auka vettlingar-ullarsokkar
Í hólfinu á að vera húfa-vettlingar-pollavetlingar-þykk peysa-pollagalli-kuldagalli-stígvél/kuldaskór

 
Veikindi barna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Leikskólar eru ætlaðir frískum börnum. Veikist barn skal það dvelja heima þar til það hefur verið hitalaust í a.m.k. 1  sólarhring. Þegar barnið kemur aftur í leikskólann eftir veikindi getur það fengið að vera inni 1-2 daga. Ef þörf er á fleiri innidögum vegna veikinda eru foreldrar beðnir að hafa samband við deildarstjóra á deild barnsins.

Trúnaðarlæknir leikskólans er Atli Einarsson

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 2

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Geislabaugur | Kristnibraut 26 | 113 Reykjavík | s: 5172560 | Póstur | Viðburðir | Fréttir