Hér að neðan er hægt að nálgast upplýsingar um það starf sem fram fer á leikskólanum frá degi til dags.
|
Dagskipulag er ekki eins á öllum deildum, sjá nánar á viðkomandi deildum.
Hér er gróft dagskipulag á öllum deildum.
Dagskipulag
7:30 - 8:00 Leikskólinn opnar róleg stund
8:00 - 9:00 Morgunmatur
9:00 -10:00 Leikur/Val
10:00-11:30 Hópastarf/Útivera
11:30-11:45 Samverustund
11:45-12:30 Hádegismatur
12:30-13:00 Hvíld
13:00-14:15 Útivera/Hópastarf
14:15-14:30 Samverustund
14:30-15:15 Hressing
15:15-16:15 Leikur
16:15-17:15 Sameinað á deildum /Tiltekt/Róleg stund
17:15 Leikskólinn lokar
|
|
|
Barnið er miðpunktur dagsins í starfi deildarinnar en ekki er boðið uppá neinar sérstakar veitingar. Á sjálfan afmælisdaginn, eða sem næst honum, er sunginn afmælissöngur fyrir barnið, það fær kórónu og það er þjónn dagsins. Einnig fær það að velja sérstakan afmælis borðbúnað. Í sameiginlegri söngstund í sal á föstudögum er sungið fyrir öll afmælisbörn vikunnar.
|
|
Stundirnar byrja kl. 9:30 í salnum á föstudögum. Vinastund er sameiginleg söngstund þar sem öll börn á og kennarar Geislabaugs koma saman, syngja, dansa og koma fram fyrir hvert annað með leikþátt eða söng.
|
|
|
Á haustin byrjum við að vinna sérstaklega með elstu börnin, sem við köllum á Geislabaugi, Meistara. Við eflum og styðjum þau á ýmsan hátt með skapandi og meira krefjandi verkefnum en umfram allt leggjum við ríka áherslu á gleði og samkennd í hópunum. Sjá nánar í námskrá elstu barna. ATH SETJA LINK HÉR
|
|
Þegar barnið byrjar fá foreldrar blað þar sem farið er yfir aðlögunarferlið. Þetta er mikilvægur tími fyrir alla til að kynnast og mynda góð tengsl og því gott að gefa aðlögun góðan tíma. Mjög misjafnt er hversu langan tíma barnið þarf í aðlögun.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 3 |