Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Söngfuglarnir Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 21 apríl 2010 15:39


  Mikið er um að vera hjá okkur þessa dagana. Í dag sungu börnin 
  á Lindinni á foreldramorgni í Guðríðarkirkju þau stóðu sig með prýði         og eru miklir söngfuglar.
Sólarbörnin fóru einnig í kirkjuna til þess að horfa á og styðja við bakið á skólasystkinum sínum.
Lautarbörnin fóru í strætóferð í bæinn og skoðuðu sýningar í Ævintýrahöllinni.
Stjörnubörnin fóru einnig í strætóferð og enduðu í útikennslustofunni í Sæmundarseli og Gunnar Hrafn hitti þau á leiðinni og kom með þeim heim í söngstund mikil gleði að hitta hann aftur.. Fjallabörnin fóru í göngutúr um hverfið.


Meistarastrákarnir á Fjallinu gerðu stormandi lukku með sínum söng á hamingjuhádegi í Guðríðarkirkju eftir hádegi, svaka flottir strákar

 
Fuglinn í Ljóta polli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 20 apríl 2010 12:06


 

Í tilefni Barnamenningarhátíðar var opnuð sýningin "Fuglinn í Ljóta polli "
 Allur leikskólinn fór í halarófu niður að ljóta svæðinu fyrir neðan leikskólann okkar.
 Þar afhjúpaði Allý listaverkið sem börnin eru búin að vinna að síðustu vikur.

 Þessi fugl sem er kallaður KRUMMI KRÚTT á að vekja athygli og forvitni fólks á þessu svæði
 sem er í mikilli órækt og yfirleitt notað sem ruslahaugur.

 Okkur langar að fá hugmyndir fólks sem býr í hverfinu hvað það vill sjá á þessu svæði, við erum
 með þar til gerða bók sem fólk getur skrifað sínar hugmyndir í.
 Bókin er staðsett við Krummann.

 Með kærri kveðju

  KRUMMI KRÚTT

 

 

 

Lesa meira...
 
Barnamenningarhátíð í Reykjavík Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 14 apríl 2010 22:12

Í næstu viku hefst Barnamenningarhátíðin í Reykjavík og við tökum að sjálfsögðu fullan þátt í henni. Þema hátíðarinnar er Forvitni og skólarnir hér í Grafarholti sameinuðust um að vekja forvitni á Fuglum. Við í Geislabaugi höfum verið gagntekin af fuglum, börnin hafa verið að fræðast og skapa fugla af öllum stærðum og gerðum stóra,smáa,skrautlega,krummagrímur ofl. Einn hópurinn fór að Reykjavíkurtjörn og tók ljósmyndir af fuglum ofl sem fyrir augu bar. Nokkrir fóru á Krummasýningu í Gerðubergi og mikið hefur verið um göngutúra um hverfið og börnin hafa sannarlega tekið eftir Krumma sem er algengur fugl í Grafarholtinu. En öll börnin eru að undirbúa stórt verk sem verður afhjúpað Þriðjudaginn 20. apríl kl 10:30 á ljóta svæðinu fyrir neðan útisvæðið okkar.
Einnig mun salurinn okkar verða opinn alla vikuna þar verður stórt " Fuglabúr " með allskonar fuglum sem þið getið komið og skoðað. Tveir hópar munu syngja í Guðríðarkirkju miðvikudaginn 21 apríl.Fjallastrákarnir ætla að syngja nokkrar Krummavísur kl 12:00 og Börnin á Lindinni munu syngja nokkur lög kl 10:00.

Allir eru velkomnir að taka þátt í hátíðinni með okkur.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 7 af 50

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Geislabaugur | Kristnibraut 26 | 113 Reykjavík | s: 5172560 | Póstur | Viðburðir | Fréttir